Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, var fremst á meðal jafningja í bankageiranum þegar kom að áheitasöfnun fyrir Reykjavíkurmaraþon bankans á laugardag. Birna safnaði 140.000 krónum fyrir góðgerðafélagið Göngum saman. Félagið styrkir rannsóknir á brjóstakrabbameini.
Nokkur önnur þekkt nöfn úr bankaheiminum söfnuðu einnig áheitum til styrktar góðum málefnum. Þar á meðal voru Pétur Einarsson, forstjóri Straums fjárfestingarbanka, Ingólfur Bender, forstöðumaður Greiningar Íslandsbanka, og Davíð Stefánsson, sérfræðingur hjá greiningardeild Arion banka.
Á meðal annarra hlaupara sem náðu góðum tíma voru þeir Heiðar Már Guðjónsson fjárfestir, Ármann Þorvaldsson, fyrrverandi bankastjóri Kaupþings Singer & Friedlander, og Kristín Pétursdóttir, forstjóri Auðar Capital.
Misjafnt var hvað bankamennirnir hlupu langar vegalengdir. Birna fór 10 kílómetrana á 1:14:54 samkvæmt flögutíma.
Hér má sjá úrslit og tíma í maraþoninu.
Nánar er fjallað um hlauparana í bankageiranum í Viðskiptablaðinu sem kemur út á morgun. Meðal annars efnis í blaði morgundagsins er:
- Seljendalán FIH ekki fært niður
- Áfengið flæðir úr verslun Heiðrúnar
- Víglundur Þorsteinsson og yfirtakan á BM Vallá
- Iceland Express vill sjá tilboð um flug ríkisstarfsmanna
- Seðlabankinn telur efnahagsbata ráðast af gengi krónunnar
- Oddný G. Harðardóttir fjármálaráðherra ræðir um næstu fjárlög og margt fleira í viðtali Viðskiptablaðsins
- Lokasprettur vinstri stjórnarinnar er framundan - úttekt um komandi vetur í pólitík
- Elvar Árni mundar byssuna við upphaf gæsaveiðitímabilsins
- Nærmynd af hagfræðingnum Pétri J. Eiríkssyni í Hörpunni
- Óðinn fjallar um aðildarviðræður við Evrópusambandið og kreppuna
- Huginn & Muninn eru á sínum stað auk Týs sem fjallar um viljann til að taka þátt í stjórnmálum
- Og margt, margt fleira.