Fjórði stærsti lífeyrissjóður landsins, Birta lífeyrissjóður, hefur ákveðið að taka ekki við fleiri nýjum umsóknum um óverðtryggð sjóðfélagalán „að svo stöddu“ að því er sjóðurinn hefur tilkynnt á vef sínum .
Vænta megi að óverðtryggð lán verði í boði á ný hjá sjóðnum í kringum áramót þegar lánsframboð sjóðsins hafi verið endurskoðað. Sjóðurinn bendir þó á að hann bjóði „ennþá upp á hagstæð verðtryggð lán til sinna sjóðfélaga“.
Í tilkynningu sjóðsins kemur fram að þær lánsumsóknir sem honum hafi þegar borist vegna óverðtryggðra lána verði afgreiddar á næstu vikum og mánuðum. Birta hefur lokað áður fyrir lánveitingar en í sumar var lokað fyrir endurfjármögnun eldri lána í meira en tíu vikur hjá sjóðnum.
Sögðu lágu vextina ekki áhyggjuefni
Í lok apríl á þessu ári hafði Viðskiptablaðið eftir Ólafi Sigurðssyni framkvæmdastjóra sjóðsins að 2,85% vextir sjóðsins á óverðtryggðu lánin þá væri ekki áhyggjuefni , en í sumar lækkuðu vextir lánanna niður í 2,1% .
Í lok júlí 2018 komu fram fréttir um aukinn áhuga lántakenda á óverðtryggðum lánum, samhliða lækkandi vöxtum , en þá hafði hlutfall slíkra lána aukist úr 7,5% lána Almenna lífeyrissjóðsins í maí 2015 upp í 30% í maí 2017.
Viðskiptablaðið fjallaði ítarlega um aukinn áhuga á óverðtryggðu lánunum haustið 2017 og kom þar meðal annar fram að lífeyrissjóðirnir hafi tekið við hlutverki Íbúðalánasjóðs í útlánum til íbúðarkaupa beint.
Tveimur árum seinna var hlutur óverðtryggðra fasteignalána kominn yfir þrjá fjórðu allra nýrra lána , samhliða því að Birta og aðrir lífeyrissjóðir lækkuðu breytilega vexti óverðtryggðra sjóðfélagalána.
Hér má sjá frekari fréttir um Birtu og óverðtryggð útlán lífeyrissjóða:
- 24. júní 2020 - Opna aftur fyrir endurfjármögnun íbúða
- 3. júní 2020 - Birta býður 2.1% óverðtryggða vexti
- 25. apríl 2020 - 2,85% vextir ekki áhyggjuefni
- 2. apríl 2020 - Birta býður 2,85% óverðtryggða vexti
- 5. október 2019 - Heimilin flykkjast í óverðtryggða vexti
- 11. september 2019 - Hlutur óverðtryggðra 77% af nýjum lánum
- 22. nóvember 2017 - Vextir á íbúðalánum sjaldan verið lægri
- 6. október 2017 - Aukning í lánveitingum 130 milljarðar
- 30. september 2017 - Óverðtryggð lán í sókn
- 28. júlí 2017 - Aukinn áhugi á óverðtryggðum lánum
- 30. nóvember 2016 - Birta lífeyrissjóður tekur til starfa
- 29. september 2016 - Birta lífeyrissjóður stofnaður