Birta lífeyrissjóður og Skógræktin hafa samið til þriggja ára um skógrækt á þremur hekturum lands í Haukadal. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Þetta er liður í Grænum sporum Birtu, verkefni sem lífeyrissjóðurinn hefur ýtt úr vör og hefur að markmiði að kolefnisjafna á móti eigin rekstri, innleiða grænt bókhald og stuðla í smáu og stóru að því að reksturinn sé í sátt við umhverfi og náttúru.

Þetta er fyrsti samningur sinnar tegundar sem lífeyrissjóður gerir við Skógræktina og um leið stefnuyfirlýsing um Græn spor Birtu.

Samningurinn var undirritaður í Haukadal að viðstöddum stjórnarmönnum og stjórnendum Birtu og og fulltrúum Skógræktarinnar. Gert er ráð fyrir að í Birtulandinu verði plantað blönduðum skógi með stafafuru, sitkagreni og alaskaösp.

Kolefnisbinding og kolefnisforði skógarins í trjám, botngróðri og jarðvegi verður eign Birtu lífeyrissjóðs næstu hálfa öldina eða til ársins 2068. Eignarhaldið færist þá til Skógræktarinnar án endurgjalds.