Fjármálaráðuneytið hefur birt reglur um eignarhald í fjármálafyrirtækjum í tilefni kaupa fjögurra fjárfestingarsjóða á hlutum í Arion banka.
Þar á meðal helstu reglur sem gilda um eignarhald í fjármálafyrirtækjum, tilkynningu um kaup á hlutum í Arion banka hf. og þau sérstöku skilyrði sem Kaupþingi hf. voru sett fyrir eignarhaldi á virkum eignarhlut í Arion banka hf. með ákvörðun Fjármálaeftirlitsins 2010.
Þau atriði sem koma til skoðunar við mat á því hvort aðili telst vera hæfur til þess að fara með virkan eignarhlut eru í grunninn fimm.
Þessi atriði eru:
- Orðspor þess sem hyggst eignast virkan eignarhlut.
- Orðspor og reynsla þess sem mun veita fjármálafyrirtæki forstöðu.
- Fjárhagslegt heilbrigði þess sem hyggst eignast virkan eignarhlut og ber að taka tillit til þess reksturs sem viðkomandi fjármálafyrirtæki hefur.
- Hvort ætla megi að eignarhald muni torvelda eftirlit með fjármálafyrirtækinu eða hafa áhrif á það hvort fyrirtækið muni starfa lögum samkvæmt. Ber m.a. að horfa til fyrri samskipta við viðkomandi aðila bæði gagnvart FME og öðrum stjórnvöldum þ.á m. önnur stjórnvöld á EES-svæðinu.
- Hvort ætla megi að eignarhald eigandans muni leiða til peningaþvættis eða fjármögnunar hryðjuverka eða eignarhaldið muni auka líkur á að slíkt muni viðgangast innan fjármálafyrirtækisins.
Í tilkynningu sem FME birti 20. mars 2017, í tilefni af kaupum á eignarhlutum í Arion banka kemur fram að kaupin hafi ekki áhrif á skilyrði sem FME setti árið 2010 fyrir virkum eignarhlut Kaupþings hf. í Arion banka hf. í gegnum eignarhaldsfélagið Kaupskil ehf.
Nánar má lesa um reglurnar á vef Fjármálaráðuneytisins .