Bjarki A. Brynjarsson verður forstjóri Marorku til frambúðar en áður hafði verið tilkynnt að hann myndi sinna starfinu tímabundið.

Jón Ágúst Þorsteinsson, stofnandi Marorku, hættir sem forstjóri um áramótin og tók Bjarki þá við.

Bjarki starfaði áður í fyrirtækjaráðgjöf H.F. verðbréfa. Hann hefur áður gegnt ýmsum stjórnunarstörfum á sviði fjármála, nýsköpunarstarfsemi og háskólastarfs, til dæmis hjá Askar Capital, Kaupþingi, Nýherja og Háskólanum í Reykjavík.