N1 hefur ráðið Bjarka Má Flosason í nýtt starf þróunarstjóra stafrænna lausna fyrirtækisins. Bjarki Már, sem kemur til N1 frá Íslandsbanka, mun vinna að áframhaldandi þróun á stafrænum þjónustulausnum fyrir viðskiptavini N1. Þetta kemur fram í tilkynningu.

„Bjarki Már kemur með mikla reynslu inn í fyrirtækið og mun tryggja að þetta mikilvæga verkefni verði keyrt áfram hratt og örugglega. Ég veit að hann mun vinna frábært starf og hlakka mikið til að starfa með honum að þeim stóru skrefum sem bíða á þessu sviði," segir Þyrí Dröfn Konráðsdóttir, forstöðumaður markaðsdeildar og stafrænnar þróunar N1, í tilkynningunni.

„N1 hefur verið á góðri leið í stafrænni þróun og það er skemmtilegt verkefni að koma fyrirtækinu í fremstu röð á þessu sviði. Það eru spennandi tímar framundan og það á ekki síst við um þetta svið, eins og viðskiptavinir N1 eiga eftir að kynnast," segir Bjarki Már, í tilkynningunni.

Bjarki Már er með BSc gráðu í Alþjóðamarkaðsfræði og hefur meðal annars starfað sem markaðsstjóri Kreditkorta og þróunarstjóri Greiðslulausna Íslandsbanka.