Bæjarlistamaður Seltjarnarness 2008 verður útnefndur nk. laugardag 12. janúar við hátíðlega athöfn, er þetta í 12. sinn sem nafnbótin er veitt listamanni sem býr á Seltjarnarnesi.

Athöfnin fer fram á Bókasafni Seltjarnarness á 2. hæð Eiðistorgs kl. 17:00.

Menningarnefnd Seltjarnarness hefur valið bæjarlistamann Seltjarnarness 2008. Þær umsóknir sem bárust nefndinni voru margbreytilegri nú en oft áður og stóð nefndin frammi fyrir vandasömu vali á milli fjölhæfra listamanna.