Nemendur frá Leikskólanum Sólbrekku fóru í heimsókn til Kristínar G. Gunnlaugsdóttur bæjarlistamanns Seltjarnarness 2008 á dögunum. Er heimsókn barnanna liður í því starfi sem Kristín hyggst sinna á árinu sem hún ber nafnbótina bæjarlistamaður Seltjarnarness. Bauð Kristín nemendum inn í vinnustofu sína þar sem sjá mátti verk hún hefur og er að vinna að. Í fyrstu sagði Kristín börnunum frá ýmsu er viðkemur starfi listamannsins og svaraði spurningum. Hún sýndi börnunum hvernig hægt er blanda liti, hvatti þau til að æfa sig í að teikna, lita og mála, því æfingin skapar meistarann. Þá talaði Kristín um að allt er leyfilegt í listinni, hægt er að mála og teikna hvað sem er, hvort sem það er af þessum heimi eða öðrum.