Á aðalfundi Almenna lífeyrissjóðsins í dag kom Bjarni Ármannsson nýr inn í stjórn sjóðsins í stað Þórs Sigfússonar.

Þrír aðalmenn voru sjálfkjörnir til áframhaldandi setu í stjórninni; Jóhannes Þórðarson arkitekt, Sigurbjörn Sveinsson læknir og Þorkell Bjarnason læknir.