Landssýn, fyrirtæki að fullu í eigu Bjarna Ármannssonar, forstjóra Glitnis, hefur keypt 50.000.000 hluta í bankanum á genginu 16,9, segir í tilkynningu til Kauphallar Íslands.

Kaupverðið nemur því 845 milljónum króna. Bjarni á kauprétt að 15.000.000 hlutum til viðbótar, en fjöldi hluta í eigu Bjarna og tengdra aðila eftir viðskiptin er 182.954.736. Beint á Bjarni 514.560 hluti í Glitni.