Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, segist gera ráð fyrir því að elli- og örorkulífeyrir muni hækka um 8,9% á næsta ári.

Frá þessu greinir Bjarni á Facebook síðu sinni, en hann segist hafa fengið margar fyrirspurnir um það hversu mikið bætur almannatrygginga muni hækka í kjölfar kjarasamninga sem gerðir hafa verið á þessu ári.

Hér að neðan má sjá færslu Bjarna í heild sinni:

„Ég verð var við að margir spyrja hve mikið bætur almannatrygginga, einkum elli- og örorkulífeyrir, muni hækka í kjölfar kjarasamninga sem gerðir hafa verið á þessu ári.

Í 69. gr. laga um almannatryggingar segir að bætur almannatrygginga (og tilteknar aðrar greiðslur og fjárhæðir) skuli breytast árlega í samræmi við fjárlög hverju sinni. Ákvörðun þeirra skuli taka mið af launaþróun, þó þannig að þær hækki aldrei minna en verðlag.

Samkvæmt þessu er ljóst að ákvörðun um næstu hækkun bóta verður tekin með fjárlögum, en frumvarp til þeirra verður lagt fram í september.

Á grundvelli þeirrar launaþróunar sem verið hefur á árinu og vænst er á næsta ári má gera ráð fyrir að hækkunin verði 8,9% fyrir árið 2016.“