Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir mál, sem koma m.a. við sögu í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis, ekki gefa tilefni til þess að hann endurskoði stöðu sína.
Bjarni segir flokksráð flokksins hafa sýnt sér mikinn stuðning sem og almennir flokksmenn. Fyrir þann stuðning sé hann þakklátur.
Þetta segir Bjarni í viðtali við Viðskiptablaðið. Í viðtalinu fjallar Bjarni um afsagnir varaformanns og þingflokksformanns flokksins, rannsóknarskýrsluna, hagstjórnina og gengismál svo eitthvað sé nefnt.
Bjarni segir að þetta skipti máli þegar menn takast á við erfið verkefni. Málin sem nefnd hafi verið sem ástæður fyrir því að hætta hafi verið skýrð.
„Það fylgir því að starfa í stjórnmálum að vegið er að trúverðugleika manns. Mér hefur hins vegar gengið vel í prófkjörum og kosningum. Ég var kosinn formaður flokksins og hef umboð til þess að vinna að framgangi flokksins og mér ber skylda til þess. Það hvarflar ekki að mér að hætta,“ segir Bjarni.
„Það er vissulega mikið verk fyrir höndum þegar kemur að því að endurvinna traust en því miðar hins vegar ágætlega miðað við þau ósköp sem hér hafa gengið á.“
Bjarni segir sjálfsagt að skýra þau mál sem nefnd hafa verið og telur sig hafa gert það nú þegar.
„Ég ætla að fara á fundi og hitta fólk á næstunni til að ræða landsmálin en það mun ekki standa á mér með svör um hvaðeina sem fólk vill spyrja mig. Í skýrslunni er nefnd boðsferð frá árinu 2007 með Glitni. Þá ferð og aðra slíka á árinu 2006 fór ég sem stjórnarformaður N1. Eftir á að hyggja voru þessar ferðir hluti af ákveðnu mynstri í viðskiptalífinu sem var komið út í of miklar öfgar. Ég skal fyrstur manna fallast á það en ferðin tengdist með engum hætti starfi mínu sem stjórnmálamanns,“ segir Bjarni.
„Það hefur einnig komið fram að ég hafi skuldað rúmlega 170 milljónir króna á tilteknum tíma. Rannsóknarnefndin fékk heimild til þess að aflétta bankaleynd ef upplýsingar ættu erindi við almenning í landinu. Það er stór ákvörðun að aflétta bankaleynd. Ég ætla svo sem ekki að gera ágreining við þetta mat nefndarinnar en mér finnst það sjálfsögð krafa, fyrst nefndin ákveður að gera þetta, að geta þess hvort nefndin telji að þarna hafi verið um óeðlilega fyrirgreiðslu að ræða. Það er bara látið hanga í lausu lofti. Ekkert slíkt átti við í mínu tilviki Þess utan greiddi ég þessar skuldir upp árið 2008, tveimur árum áður en skýrslan kemur út. Það hefði mátt láta þess getið, ekki satt?“
Loks segir Bjarni að nafn sitt komi hvergi við sögu í skýrslu nefndarinnar í tengslum við fjárfestingar Milestonemanna og lánveitingar til þeirra.
„Það er ótrúlega langt seilst að gera mig ábyrgan fyrir það eitt að hafa átt einhver samskipti við menn sem fengu stór lán í bankanum. Ég gengst við ábyrgð á þeim ákvörðunum sem ég tek, ekki gjörðum annarra manna. Umræðan um Sjóvá er svo alveg sér kapítuli. Að ég beri ábyrgð á því hvernig þar fór. Ég hef hvergi komið að einni einustu ákvörðun í því fyrirtæki. Þetta er tóm endaleysa. Ekkert nema pólitík, hugsað til að trufla mig í mínum verkum en ég mun ekki láta deigan síga. Ég mun halda áfram að vinna að þeim verkefnum sem sjálfstæðismenn hafa treyst mér fyrir.“
_____________________________
Nánar er rætt við Bjarna í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta lesið blaðið á pdf-formi hér á vefnum og þeir sem ekki hafa lykilorð geta sótt um það hér .