Eins og greint hefur verið frá í morgun þá stöðvaði lögreglan samkvæmi í Ásmundarsal í gærkvöldi. Þar voru 40-50 manns samankomin, sem er ekki í samræmi við sóttvarnareglur . Í dagbók lögreglunnar sagði að í hópnum hefði verið „einn háttvirtur ráðherra".
Vísir og Fréttablaðið greindu frá því rétt fyrir tíu í morgun að Bjarni Benediktsson hafi verið á staðnum ásamt eiginkonu sinni og nú hefur það verið staðfest.
Bjarni birti rétt í þessu yfirlýsingu á Facebook -síðu sinni:
Á heimleið úr miðborginni í gærkvöldi fengum við Þóra símtal frá vinahjónum, sem voru stödd á listasafninu í Ásmundarsal og vildu gjarnan að við litum inn til þeirra og köstuðum á þau jólakveðju. Þegar við komum inn og upp í salinn í gærkvöldi hefði mér átt að verða ljóst að þar voru fleiri en reglur gera ráð fyrir.
Eins og lesa má í fréttum kom lögreglan og leysti samkomuna upp. Og réttilega. Þarna hafði of margt fólk safnast saman.
Ég hafði verið í húsinu í um fimmtán mínútur og á þeim tíma fjölgaði gestunum. Rétt viðbrögð hefðu verið að yfirgefa listasafnið strax þegar ég áttaði mig á að fjöldinn rúmaðist ekki innan takmarkana. Það gerði ég ekki og ég biðst innilega afsökunar á þeim mistökum.