Laun Bjarna Bjarnasonar, forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur hafa verið hækkuð um 370 þúsund krónur á mánuði, úr um 2,5 milljónum króna í 2,9 milljónir króna að því er fram kemur í Fréttablaðinu í dag .
Hækkunin nemur 14,8% en ákvörðunin var tekin af stjórn Orkuveitunnar, sem er í eigu Reykjavíkurborgar og er sögð hafa verið veitt að undangengnu mati á frammistöðu Bjarna í starfinu.
Bjarni fær auk þess eingreiðslu upp á þrjár milljónir króna þar sem laun hans höfðu staðið óbreytt í tvö ár. Launahækkunin sé í takt við hækkun launavísitölu á síðustu tveimur árum.
Fréttablaðið bendir á að í aðdraganda launahækkunarinnar hafi Orkuveitan fengið endurskoðunarfyrirtækið PWC til að bera saman laun forstjóra og aðalframkvæmdastjóra í stóriðju- og veitustarfsemi hér á landi. Heildarlaun þessa hóps, sem náði til 24 fyrirtækja námu að meðaltali 4,16 milljónum króna á mánuði.