Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands, hefur boðið Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins, á sinn fund á Bessastöðum í dag klukkan 11:00.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá forsetaembættinu og er tekið fram að forseti muni ræða við fjölmiðla.

Síðustu daga hefur forsetinn hitt formenn allra flokkanna, en Bjarni er eini sem hefur verið boðaður til fundar á Bessastöðum á ný svo gera má ráð fyrir því að hann fái stjórnarmyndunarumboðið á þessum fundi.