Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, mun eiga fund með Bjarna Benediktssyni forsætisráðherra í ljósi þess að stjórn Bjartrar framtíðar og þingflokkur Viðreisnar, samstarfsflokka Sjálfstæðis­flokks­ins í ríkisstjórn, hafa lýst yfir að þessir tveir flokkar styðji ekki lengur það stjórnar­samstarf. Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsetaembættinu.

Fundurinn verður á Bessastöðum kl. 11:00 að morgni laugar­dagsins 16. september 2017.