Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, fundar nú með Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands. Fundurinn hófst kl. 17. á Bessastöðum, segir í tilkynningu frá Forsetaskrifstofu.

Í frétt á vef Mbl.is kemur fram að að Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna og Bjarni hafi rætt saman í dag eftir að Bjarni hafi slitið viðræðum við Viðreisn og Bjarta framtíð.

Hægt er að fylgjast með útsendingu af viðburðinum á vef Ríkisútvarpsins .