Aðalmeðferð er hafin í máli embættis sérstaks saksóknara gegn Bjarna Ármannssyni , fyrrverandi forstjóra Glitnis. Hann er ákærður fyrir að hafa staðið skil á efnislega röngum skattframtölum á árunum 2007 til 2009 og vantalið fjármagnstekjur upp á rúmar 200 milljónir króna af a.m.k. 29 gjaldmiðlaskiptasamningum, vaxtatekjum og arði af erlendum hlutabréfum. Samkvæmt ákæru á hendur Bjarna er honum gefið að sök að hafa komið sér undan því að greiða rétt rúmar 20 milljónir króna.

Bjarni sagði í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér vegna málsins í kjölfar umfjöllun vb.is af málinu í byrjun árs að enginn ágreiningur sé um að gerð hafi verið mistök í skattframtalsgerðinni og hann þegar greitt það sem var vanframtalið með tilheyrandi álagi skattyfirvalda.

„Það kom mér verulega á óvart að málið færi í ákærumeðferð hjá sérstökum saksóknara, bæði vegna þess að ég leiðrétti mistökin sem voru gerð og gerði upp skattskuldina með viðeigandi álagi,“ sagði hann og fór fram á frávísun málsins. Bjarni var viðstaddur aðalmeðferðina í Héraðsdómi Reykjavíkur sem hófst eftir hádegi í dag.

Bryndís Kristjánsdóttir skattrannsóknarstjóri hefur sagt litlu skipta þótt búið sé að greiða upp skattaskuldir með álagi, miðað sé við sjö milljónir króna í undanskotsmálum þegar ákvörðun er tekin um það hvaða málum er vísað til sérstaks saksóknara.