Stjórn Orku náttúrunnar (ON) hefur gengið frá ráðningu Bjarna Más Júlíussonar í starf framkvæmdastjóra. ON er dótturfyrirtæki Orkuveitu Reykjavíkur og rekur jarðgufuvirkjanirnar á Hellisheiði og Nesjavöllum og vatnsaflsvirkjun í Andakílsá í Borgarfirði. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá ON.

Bjarni Már hefur starfað sem forstöðumaður tækniþróunar ON frá því að fyrirtækið tók til starfa í byrjun árs 2014 en hafði áður verið ráðinn til Orkuveitu Reykjavíkur árið 2012. Hann lauk B.Sc. prófi í rafmagnsverkfræði frá Tækniháskólanum í Óðinsvéum 1990 og lauk meistaraprófi í verkefnastjórnun frá Verkfræðideild Háskóla Íslands (MPM) 2008. Hann er vélfræðingur og lauk prófi frá Vélskóla Íslands 1983. Áður en hann gekk til liðs við OR hafði Bjarni Már starfað hjá Landsvirkjun og Landsvirkjun Power í 22 ár. Hjá því síðarnefnda starfaði hann sem verkefnastjóri við erlend virkjanaverkefni, aðallega í Kanada og á Grænlandi.

„Starfið var auglýst laust til umsóknar í byrjun október og sóttu 63 um. Bjarni Már tekur við starfinu í dag,“ segir í tilkynningunni.