Bjarni Jónsson hefur bæst í eigendahópinn hjá Skatti og bókhaldi.

Á árunum 2006 til 2011 starfaði Bjarni sem slökkviliðsmaður í Reykjavík og Keflavík samhliða námi í viðskiptafræði við Háskólann í Bifröst.

Hann hefur jafnframt stundað meistaranám í reikningsskilum og endurskoðun við Háskóla Íslands.

Bjarni hóf störf hjá Skatti og bókhaldi árið 2011 og starfaði síðast sem uppgjörsaðili hjá fyrirtækinu.