„Við getum haldið okkur réttu megin við núllið á næstu árum en ekkert mikið meira en það að öðru óbreyttu.“ Þetta sagði Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, við kynningu á fjárlögum ársins 2014.

Gert er ráð fyrir hallalausum rekstri á ríkissjóði en þetta er fyrstu hallalausu fjárlögin í sex ár ef þau ná fram að ganga.