Bjarni Ákason og Valdimar Grímsson hafa selt Guðna Eiríkssyni meirihluta sinn í Skakkiturn ehf.  Þeir munu þó áfram eiga hlut í fyrirtækinu og mun Bjarni  starfa þar áfram og sitja í stjórn þess. Skakkiturn ehf. rekur verslanir Eplis.

Í fréttatilkynningu frá félaginu segir Bjarni Ákason niðurstöðuna vera góða og telur hana opna á sóknarfæri á markaðnum.

Þessi niðurstaða er góð að okkar mati og við treystum nýjum meirihlutaeiganda til að gera góða hluti. Áhersla var lögð á að gera sem minnstar breytingar enda hafa starfsmenn fyrirtækisins staðið sig afar vel í gegnum tíðina. Apple er með mestu markaðshlutdeild á fjölda markaða eins og í einstaklingstölvum og menntageiranum. Þá er það einnig ráðandi á sjónvarpsmarkaðnum með Apple TV.