Bjarni Þór Þórólfsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Leigufélagsins Kletts ehf, dótturfélags Íbúðalánasjóðs, að því er kemur fram í tilkynningu. Bjarni er með M.Sc. gráðu í rekstrarhagfræði frá Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn og B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Ríkisháskólanum í Kaliforníu.

Bjarni hefur starfað á sviði fjármálamarkaða, í hugbúnaðargeira og orkugeira, nú síðast hjá Reykjavík Geothermal. Bjarni hefur einnig stundað kennslu á háskólastigi. Í tilkynningunni segir að fyrstu verkefni nýráðins framkvæmdastjóra feli meðal annars í sér að ráða aðra starfsmenn til félagsins, byggja upp innviði þess og undirbúa opnun skrifstofu félagsins.

Þar segir ennfremur að megintilgangur Leigufélagsins Kletts ehf. sé að bjóða hentugt íbúðarhúsnæði til leigu um allt land með langtíma húsnæðisöryggi að leiðarljósi. Leigufélagið mun yfirtaka eignarhald og rekstur 524 fasteigna Íbúðalánasjóðs um land allt en meirihluti eignanna er nú þegar í útleigu. Samningur hefur verið gerður við Íbúðalánasjóð um rekstur eignanna uns Leigufélagið hefur að fullu tekið til starfa.