Hafrannsóknastofnun greinir frá því að 27. október síðastliðinn hafi orðið óhapp með eina af þremur vélum í rannsóknarskipinu Bjarna Sæmundssyni.

„Óhappinu var lýst þannig að vélin hafi einfaldlega stoppað með miklum hávaða. Við skoðun kom í ljós að tveir stimplar voru fastir, vélarblokkin sprungin og stimpilstöngin gengin út úr blokkinni,“ segir í tilkynningunni.

„Keypt hefur verið ný vélarblokk og var Bjarni tekinn í slipp föstudaginn 17. janúar. Gera þurfti gat á síðu skipsins til að geta skipt um vélarblokk."

Á myndinni sem hér fylgir má sjá ónýta vélina hífða út um gatið á skipinu.

Hafrannsóknastofnun segir allt kapp nú lagt á að klára viðgerðir svo Bjarni verði sjófær fyrir 10. febrúar. Þá á hann að halda til rannsókna á ástandi sjávar.