Bjarni Ármannsson fráfarandi forstjóri Glitnis hefur selt alla hluti sína í bankanum fyrir 6,8 milljarða króna, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni.

Gengi viðskiptana er 29 krónur á hlut en markaðsgengi er 26,9 við hádegi.

Um er að ræða 82.443.983 hluti sem voru í eigu Sjávarsýnar ehf. og 152.513.517 hluti í eigu Landsýnar ehf. Bæði félög eru í 100% eigu fruminnherjans.