Reykjavik Energy Invest hyggst búa yfir um 50 milljarða króna hlutafé til að hefja fjármögnun alþjóðlegra jarðhitaverkefna. Bjarni Ármannsson, fyrrverandi forstjóri Glitnis, er nýr stjórnarformaður Reykjavik Energy Invest. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu sem kynnt var á blaðamannafundi í dag. Nýr stjórnarformaður félagsins hefur keypt hluti í félaginu fyrir hálfan milljarð króna.

Auk Bjarna eru í stjórn Haukur Leósson, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur, og Björn Ingi Hrafnsson, varaformaður stjórnarinnar. Guðmundur Þóroddsson er nýráðinn forstjóri REI. Hann hefur verið forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur frá stofnun og er nú í leyfi til að leiða þessa útrás fyrirtækisins.

Eftir að Reykjavik Energy Invest hóf starfsemi hefur fjöldi erlendra og innlendra fjárfesta lýst yfir áhuga á þátttöku í fyrirtækinu. Stefnt er að því að gefa út nýtt hlutafé í fyrirtækinu og að Orkuveita Reykjavíkur verði kjölfestufjárfestir með um 40% hlutafjár.

Síðasta áratug hefur Orkuveita Reykjavíkur verið leiðandi í heiminum í byggingu nýrra jarðgufuvirkjana. Reykjavik Energy Invest mun búa að þeirri stöðu Orkuveitu Reykjavíkur sem og áratuga reynslu af rekstri stærstu jarðhitaveitu í heimi. Hitaveitan í Reykjavík er stærsta einstaka framlagið til þeirrar einstöku stöðu Íslands, þar sem meira en 70% frumorkunotkunar landsmanna er vistvæn.

Reykjavik Energy Invest á hluti í útrásarfélögunum Enex, Enex-Kína, Galantaterm og Iceland American Energy.
Bjarni Ármannsson, stjórnarformaður REI, segir í tilkynningu: "Á undanförnum árum hefur athygli heimsins beinst í vaxandi mæli að endurnýjanlegum orkugjöfum og nýtingu þeirra. Þverrandi magn kolefnisorkugjafa og neikvæð útblástursmengun sem þeim fylgir skapar ný tækifæri til fjárfestinga á þessu sviði.

Jarðhiti og nýting hans er í vaxandi mæli að ná inn á sjóndeildarhring fjárfesta og þeirra sem móta stefnu á hinum pólitíska vettvangi.

Við Íslendingar höfum sérstöðu í þessum efnum, eftir að hafa náð mjög góðum tökum á nýtingu jarðhita. Orkuveita Reykjavíkur hefur verið í fararbroddi á þessum vettvangi í áratugi og fengur í því að geta nýtt sér þekkingu Orkuveitunnar til öflugrar fjárfestingar í alþjóðlegum verkefnum á sviði jarðhita."