Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra segir að Seðlabankinn muni nú leggja sjálfstætt mat á hvort að tillögur kröfuhafa Glitnis samræmist stöðugleikaskilyrðum, framkvæmdahópur um losun fjármagnshafta sé einungis til ráðgjafar. Þetta kom fram í samtali Viðskiptablaðsins við fjármálaráðherra eftir ríkisstjórnarfund í dag.
„Þetta fer þannig fram að Seðlabankinn leggur fyrst mat á þessi framlög og horfir meðal annars til áhrifa á greiðslujöfnuðinn í framtíðina. Það er við erum fyrst og fremst að horfa til að við leysum hinn undirliggjandi vanda. Ætli megi ekki segja núna að það sé orðið alveg skýrt, að með því að stjórnvöld voru með lögunum og stöðugleikaskilyrðunum að höggva á hnútinn þá komumst hlutirnir loksins á hreyfingu. Þetta sýnir það hversu nauðsynlegt það var að við stigum inn í þetta ferli í sumar og settum lög og sögðum að þetta er það sem þarf að gerast og það er ekki endalaus tími, ekki frekari frestir sem verða veittir í þessu efni.“
Bjarni sagði einnig að með þessari tillögu kröfuhafa Glitnis væru þeir að stíga stærra skref en þeir virtust vera tilbúnir til að gera. „Við höfum hins vegar ekki breytt neinu í okkar afstöðu, það er hérna stöðugleikaskilyrði sem að er ætlað að verja hagkerfið til útgreiðslu til kröfuhafa og verði þeim ekki mætt þá fellur skattur á slitabúin. Það er okkar afstaða og hún er alltaf óbreytt.“
Ekki er hægt að segja til hvert verðgildi stöðugleikaframlagsins sé en Bjarni segir að hann hafi horft þannig á að þeir eru að leysa undirliggjandi vandamál, þetta sé ekki tekjuöflunaraðgerð.
Bjarni segir að of snemmt að segja til um hvort ríkið muni enda með að eignast Íslandsbanka, og ríkið eigi þar með tvo banka. Ríkið yrði þá komið með eignarhlut í fjármálafyrirtækjum sem er líklega eitthverstaðar í kringum 25% af landsframleiðslu sem er langt umfram það sem tíðkast annars staðar, í nágrannaríkjum og í Evrópu, að sögn Bjarna. Hann segir að það sé ekki æskilegt að ríkið haldi á þeim hlut lengi.
Bjarni segir að jafnvel þótt að stjórnvöld nái samningum við Glitni um fyrirliggjandi tillögur, þá séu mörg góð rök fyrir því að þetta verði afgreitt heildstætt til að hægt sé að sjá heildarmyndina.