Bjarni G.P. Hjarðar, byggingar- og umhverfisverkfræðingur, hefur tekið til starfa sem sérfræðingur og ráðgjafi á fasteignasviði Eignaumsjónar.

Ásamt almennri ráðgjöf til viðskiptavina leiðir Bjarni þróun og uppbyggingu nýjunga í þjónustu Eignaumsjónar, þ. á m. úttektir á hleðslufyrirkomulagi rafbíla í fjölbýlishúsum og fleiri greiningar, s.s. á rekstri, kostnaði og tæknilegum lausnum og nýjungum í starfsemi húsfélaga.

Bjarni er með Tekn. Lic. gráðu frá Chalmers Tekniska Högskola í Gautaborg árið 1994 í kerfisfræði byggingariðnaðarins, mastersgráðu, M.Sc., í framkvæmdaverkfræði frá sama skóla árið 1990 og B.Sc. gráðu frá byggingarverkfræðiskor Háskóla Íslands árið 1989. Áður en Bjarni kom til starfa hjá Eignaumsjón var hann yfirverkfræðingur hjá SORPU bs. í 12 ár, staðgengill forstjóra og deildarstjóri þróunar- og tæknideildar. Þar á undan var Bjarni deildarforseti viðskipta- og raunvísindadeildar Háskólans á Akureyri, frá 1995 til 2008.