Bjarni Örn Kærnested hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri stafrænnar þróunar og upplýsingatækni hjá Isavia. Greint er frá ráðningu hans í fréttatilkynningu.

Bjarni Örn hefur starfað sem forstöðumaður á upplýsingatæknisviði hjá Össuri frá árinu 2019. Þar hefur hann borið ábyrgð á fjármálum og rekstri upplýsingatæknisviðsins og alþjóðlegri verkefnastofu fyrirtækisins. Áður starfaði hann sem forstöðumaður miðlægra lausna hjá Origo og á upplýsingatæknisviði Arion banka þar sem hann tók m.a. þátt í að móta og þróa stafræna vegferð bankans.

Bjarni Örn er með B.Sc.-gráðu í tölvunarfræði frá Háskóla Íslands og MBA frá Waseda-háskólanum í Japan. Hann mun hefja störf hjá Isavia í byrjun nýs árs.

„Við bjóðum Bjarna Örn hjartanlega velkomin til starfa og hlökkum til að fá hann sem liðsfélaga," segir Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, í fréttatilkynningu. „Stafræna vegferðin okkar er rétt að byrja og tækifærin sem fylgja upplýsingatækninni eru án takmarkanna. Sú reynsla og þekking sem Bjarni Örn kemur með að borðinu mun koma til góða  þegar kemur að því að tryggja samkeppnishæfni Keflavíkurflugvallar til framtíðar."