Bjarni Benediktsson segir ekki annað koma til greina fyrir sig og Sjálfstæðisflokkinn en að halda áfram að berjast fyrir sigri í vor. Þetta kom fram í máli Bjarna á fundi sjálfstæðismanna í Garðabæ í morgun. „Ég vil vinna fyrir þjóðina. Ég vil gera þessari þjóð gagn,“ sagði Bjarni.

Bjarni lýsti því sem kunnugt er yfir í þættinum Forystusætinu á fimmtudagskvöld að hann væri að íhuga stöðu sína sem formaður flokksins. Hann sagðist á fundinum í morgun þakklátur sjálfstæðismönnum fyrir að hafa gefið sér svigrúm til að íhuga sína stöðu og sagðist hafa fengið mikil viðbrögð við viðtalinu á fimmtudag.