Bæjarráð hefur falið falið bæjarstjóra að ræða við forsvarsmenn Frjálsa fjárfestingarbankans hf. vegna tilboðs bankans í tvær fjölbýlishúsalóðir við Bjarkarás.

Alls bárust 49 tilboð í lóðirnar. Hæsta tilboðið var frá Fasteignafélaginu Hlíð ehf. að upphæð 200.550.000 krónur en félagið hefur fallið frá því tilboði. Að teknu tilliti til þess er hæsta tilboðið frá Frjálsa fjárfestingabankanum hf. að fjárhæð 175.350.000 krónur.

Bæjarráð fól bæjarstjóra að ræða við hæstbjóðanda og afla gagna um fjárhagslega stöðu, fjármögnun og nánari tilhögun framkvæmda.