Öfugt við íbúa flestra annarra iðnríkja hefur bjartsýni almennings á Íslandi á efnahags- og atvinnuhorfur aukist nú á haustdögum. Gallup birti í morgun Væntingavísitölu sína (VVG) fyrir septembermánuð og fjallar greining Íslandsbanka um málið í Morgunkorni í dag.

Vísitalan hækkar um tæp 20 stig á milli mánaða, úr 50,1 stigi í 69,4 stig. Þetta er hæsta gildi vísitölunnar frá ágúst í fyrra, og skýrist að mestu leyti af hækkun á væntingum til ástandsins eftir 6 mánuði. Er sú undirvísitala nú 99,8 stig, sem þýðir að nánast jafn margir svarendur eru bjartsýnir og svartsýnir á ástandið í efnahags- og atvinnumálum þjóðarinnar að hálfu ári liðnu.

Mat á núverandi ástandi er hins vegar áfram lágt, 23,7 stig, og stendur nánast í stað milli mánaða. Hlýtur að koma nokkuð á óvart hversu bjartsýni á ástandið að hálfu ári liðnu hefur aukist á sama tíma og efnahagshorfur á alþjóðavísu hafa hríðversnað og nýlegar spár gera ráð fyrir talsvert lakara efnahagsástandi á heimsvísu á næsta ári en áður var búist við. Væntingar neytenda í helstu iðnríkjum hafa enda lækkað verulega á ofanverðu sumri. Þá verður ekki séð að neitt nýtt hafi komið fram á síðustu vikum sem auka ætti landanum bjartsýni á efnahagshorfur hérlendis til skemmri tíma litið.