Forráðamenn Björgunarmiðstöðvarinnar á Selfossi hafa boðið ríkinu að kaupa hlut í miðstöðinni að því er kemur fram í frétt í Sunnlenska fréttablaðinu.

Framkvæmdir hafa legið niðri í Björgunarmiðstöðinni undanfarna mánuði. Upphaflega stóð til að Brunavarnir Árnessýslu og sjúkraflutningar HSu flyttu inn 17. júní 2008. Það varð ekki og miklir fjárhagserfiðleikar hafa einkennt verkið.