Norska fyrirtækið, Sekse & Hogstad, hefur nú auglýst hjá vinnumiðluninni Job.is 10 lausar stöður í Stavanger í Noregi.

Stafanger er af  Sekse & Hogstad kölluð olíuhöfuðborg Noregs.

Þetta eru allt störf þar sem krafist er mikillar þekkingar og menntunar, og launin væntanlega í samræmi við það.

Þarna er óskað eftir endurskoðendum, fjármálasérfræðingum, verkfræðingum og efnafræðingum, svo fátt eitt sé nefnt.