Samkaup hefur opnað fyrstu hraðhleðslustöðina við verslun Nettó í Borgarnesi og stefnir á fleiri. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Fyrirtækið gerði fyrr á árinu samning við Ísorku og mun bjóða upp á hleðslustöðvar við verslanir sínar um land allt. Áætlað er að aðrar verslanir Samkaupa muni bjóða upp á hleðslustöðvar á komandi misserum.

„Við erum hæstánægð með að hafa opnað okkar fyrstu rafhleðslustöð. Þróunin á þessum markaði er gríðarlega spennandi, en í upphafi þessa árs voru seldir fleiri nýir bílar sem knúnir eru rafmagni en bensíni eða dísilolíu. Samkaup reka verslanir um land allt og við búumst við að þessari þjónustu verði vel tekið af okkar viðskiptavinum sem og ferðamönnum, erlendum og innlendum," segir Gunnar Egill Sigurðsson, framkvæmdastjóri verslunarsviðs Samkaupa, í tilkynningunni.

Hraðhleðslustöðvar Samkaupa eru að lágmarki 150KW og eru eingöngu hannaðar fyrir rafbíla sem geta hraðhlaðið. Þær verða settar upp við að minnsta kosti helming verslana félagsins en Samkaup rekur rúmlega 60 verslanir víðsv egar um landið undir vörumerkjunum Nettó, Krambúðin, Kjörbúðin og Iceland.

„Þróunin virðist vera sú að rafknúnir bílar séu að sækja í sig veðrið og því mikilvægt að koma til móts við þær þarfir viðskiptavina okkar. Þar að auki er það stefna stjórnvalda að rafvæða samgöngur á Íslandi fyrir árið 2030," segir Gunnar.

Ísorka rekur í dag yfir 900 hleðslustöðvar á Íslandi. Um 450 þeirra eru aðgengilegar almenningi, aðrar í fjölbýlum og við fyrirtæki í skertu aðgengi.