Fasteignafélagið Salteyri ehf., hefur gert Foodco tilboð í húsnæði veitingastaðarins Kaffivagnsins á  Granda í Reykjavík að því er Morgunblaðið greinir frá.

Jóhann Þórarinsson, forstjóri FoodCo, segir tilboðið vera til skoðunar. FoodCo eignaðist Kaffivagninn árið 2017 en Kaffivagninn hefur verið í rekstri frá árinu 1935. Samkvæmt heimasíðu Kaffivagnsins er það elsti samfleytt rekni veitingastaður á Íslandi þó hann hafi ekki alltaf verið á sama stað.

FoodCo sameinaðist nýlega Gleðipinnum og mynda þeir eina stærstu veitingastaðakeðju landsins.