Sóltún Öldrunarþjónusta býðst til að reka hið nýja Oddsson hótel við Grensásveg sem hjúkrunarþjónustu fyrir aldraða til að létta álagi á Landspítalann eftir ákall heilbrigðisráðuneytisins um ný hjúkrunarrými.

Framkvæmdir hófust við hótelið, sem staðsett er á horni Grensásvegar og Fellsmúla í húsnæði þar sem áður voru höfuðstöðvar Alþýðusambandsins, árið 2017 en hótelið opnaði í byrjun sumar 2019. Eins og þekkt er hefur ekki verið mikil eftirspurn eftir hótelrýmum í landinu síðan kórónuveirufaraldurinn dró úr ferðalögum almennings.

Nú segja eigendur að hótelið gæti nýst 77 einstaklingum sem eru á biðlista eftir hjúkrunarrými og komast m.a. ekki af Landspítalanum vegna skorts á hjúkrunarrýmum. Því hefur Sóltún Öldrunarþjónusta boðið heilbrigðisráðuneytinu að reka hótelið sem tímabundna hjúkrunaraðstöðu fyrir aldraða.

Þar er þá ætlunin að félagið taki á móti einstaklingum sem hægt er að útskrifa af Landspítalanum en komast ekki þaðan vegna skorts á úrræðum. Með því er hugmyndin að létta verulega það álag sem nú er á Landspítalanum, en Oddsson gæti tekið við allt að 77 einstaklingum í einstaklingsherbergi.

Sóltún Öldrunarþjónusta hyggst þannig svara ákalli heilbrigðisráðuneytisins, sem sendi fyrir skömmu erindi á hjúkrunarheimili og óskaði eftir að þau leituðu leiða til að fjölga hjúkrunarrýmum. Félagið býðst til að reka aðstöðuna í Oddsson á meðan samfélagið vinnur úr því erfiða ástandi sem skapast hefur vegna COVID-19. Fyrstu rýmin gætu verið tilbúin í nóvember.

Oddsson hótel er í nýuppgerðu húsnæði við Grensásveg og segja aðstandendur að ekki þurfi að ráðast í miklar breytingar á sameiginlegu rými eða herbergisaðstöðu til að hægt sé að reka þar þjónustu fyrir aldraða.

Eins og alþekkt er hefur kórónuveirufaraldurinn COVID-19 gert það að verkum að lítil eftirspurn er eftir hótelrýmum sem stendur og því hefur myndast þetta tækifæri til að nýta hótelið til að leysa bráðavanda Landspítalans. Sóltún Öldrunarþjónusta er rekstraraðili hjúkrunarheimilisins Sólvangs í Hafnarfirði og heimahjúkrunarþjónustunnar Sóltún Heima.

Félagið segist jafnframt hafa reynslu af uppsetningu og rekstri bráðabirgðahjúkrunarheimilis, því það opnaði og rak 30 bráðabirgðarými á síðasta ári sem stækkun við Sólvang á meðan beðið var eftir opnun nýs hjúkrunarheimilis á Sléttuvegi.