Bandaríska verslunarkeðjan Walmart hyggst bæta nýjum möguleika við netverslun sína. Þessi möguleiki mun gera viðskiptavinum kleift að fara í búðarleiðangur úr tölvunni heima hjá sér. Fólk mun geta valið sér vörur úr hillum verslana í gegnum tölvuna. Þetta kemur fram á vef Reuters .

Stefnt er að því að þessi möguleiki verði kominn í gagnið í vefverslun fyrirtækisins í næsta mánuði.

Með þessu er Walmart að feta sömu slóð og mörg önnur fyrirtæki, en fyrirtæki eru sífellt að leggja meiri áherslu á netverslun og upplifun viðskiptavina á slíkri verslun.