Um verslunarmannahelgina mun Olís bjóða upp á bjór á bensínstöðvum sínum á leiðinni frá Reykjavík til Vestmannaeyja, en greint er frá þessu í Morgunblaðinu . Þar segir að Tuborg bjór verði til sölu á bensínstöðvum félagsins í Norðlingaholti, Selfossi og Hellu.

Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir, framkvæmdastjóri smásölusviðs hjá Olís, segir í samtali við Morgunblaðið að þetta sé gert í samstarfi við Þjóðhátíðarnefnd og Ölgerðina.

Leyfi Olís til áfengissölunnar gildir tímabilið 28. júlí til 4. ágúst frá kl. 11:30 til 23:00.