Bjórböðin á Árskógssandi hlutu nýsköpunarverðlaun Samtaka ferðaþjónustunnar árið 2018. Eliza Reid, forsetafrú, afhenti Bjórböðunum verðlaunin á 20 ára afmæli Samtaka ferðaþjónustunnar sem fram fór á Hilton Reykjavík Nordica. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samtökum ferðaþjónustunnar SAF.

Í fréttatilkynningu frá SAF segir dómnefnd hafi verið einróma samþykkir því að að handhafi verðlaunanna í ár séu Bjórböðin ehf. Bjórböðin voru opnuð í júní 2017 og vöktu þegar mikla athygli bæði hérlendis sem erlendis enda eru slík böð ekki að finna hvar sem er í heiminum. Fyrirtækið kom því ekki aðeins nýtt inn á markaðinn, heldur kom það inn með glænýja upplifun þar sem vellíðan og slökun gegnir lykilhlutverki á nýstárlegan hátt.

Bjórböðin hafa skapað sér ákveðna sérstöðu í ferðaþjónustu og ferðaskrifstofur verið fljótar að taka við sér með því að bjóða upp á ferðir þar sem viðkoma í böðunum er innifalin. Bjórböðin eru því þegar orðin mikilvægur segull fyrir ferðaþjónustu á Norðurlandi og styrkja markaðssetningu áfangastaðarins allt árið um kring.

Agnes Sigurðardóttir og Ólafur Þröstur Ólafsson, eigendur bruggverksmiðjunnar Kalda á Árskógssandi í Eyjafirði, stofnuðu fyrirtækið Bjórböðin ehf. árið 2015 ásamt syni þeirra og tengdadóttur. Í bjórböðunum er ger úr bjórbrugginu nýtt sem annars hefði verið hent. Bjórböðin eru lýsandi dæmi um frjóan frumkvöðla anda sem skilar sér í áhugaverðri ferðavöru og atvinnuskapandi starfsemi allt árið um kring.

Samtök ferðaþjónustunnar afhenda árlega nýsköpunarverðlaun fyrir athyglisverðar nýjungar og er markmiðið að hvetja fyrirtæki innan SAF til nýsköpunar og vöruþróunar. Verðlaununum er ætlað að hvetja frumkvöðla landsins til dáða í ferðaþjónustu. Þetta er í fimmtánda sinn sem SAF veita nýsköpunarverðlaun samtakanna en þetta árið bárust 33 tilnefningar í samkeppninni um verðlaunin.

Verðlauning mikil viðurkenning

Í fréttatilkynningunni er haft eftir þeim Agnesi og Ólafi eigendum bjórbaðanna:

„Við hjá Bjórböðunum erum ótrúlega þakklát og stolt að hafa verið veitt þessa flotta viðurkenning. Þegar við fórum af stað í þetta verkefni höfðum við mikla trú á því að við gætum skapað nýja og ógleymanlega upplifun í ferðaþjónustu. Viðbrögðin frá gestum hafa verið gríðarlega góð og eru því þessi verðlaun mikil viðurkenning af okkar starfi og þökkum við kærlega fyrir okkur.“