Í dag runnu 433.281.204 hlutir í Straumi-Burðarási fjárfestingarbanka sem voru í eigu Topaz Equities til Samson Global Holdings, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Samson Global Holdings og Topaz Equities eru bæði í eigu eignarhaldsfélaga Björgólfs Thor Björgólfssonar og Björgólfs Guðmundssonar. Markaðsvirði hlutarins er um sjö milljarðar króna, miðað við lokagengi fjárfestingarbankans í gær.

Björgólfur Thor Björgólfsson er stjórnarformaður Straums-Burðaráss fjárfestingarbanka. Fyrir átti Samson Global Holdings 960.613.210 hluti í fjárfestingarbankanum og á því nú 1.393.894.413 hluti. Fjöldi hluta í eigu aðila sem eru fjárhagslega tengdir Björgólfi Thor Björgólfssyni eru óbreyttir eftir tilfærsluna.