Björgólfur Guðmundsson og Björgólfur Thor Björgólfsson hafa ákveðið að styrkja stöðu Eimskips [ HFEIM ], komi til þess að 207 milljóna evra, tæplega 27 milljarða króna, ábyrgð vegna XL Leisure Group falli á félagið.

Í tilkynningu frá Eimskipi segir að falli ábyrgðin á félagið, muni hópur fjárfesta undir forystu feðganna kaupa kröfuna og fresta gjalddaga hennar.

Jafnframt sé fyrirhugað að hún muni víkja fyrir kröfum annarra lánardrottna á hendur Eimskipi. Með þessum aðgerðum séu takmörkuð þau áhrif sem ábyrgðir vegna lána og annarra skuldbindinga vegna XL samstæðunnar kunni að hafa á starfsemi Eimskips.

Mikil lækkun hlutabréfanna í gær

Þessi aðgerð kemur í kjölfar þess að hlutabréf Eimskips lækkuðu um 8,2% í gær og 16,5% á mánudag, eins og fram kemur í umfjöllun Viðskiptablaðsins í dag.

Félag Björgólfs Guðmundssonar, Fjárfestingafélagið Grettir hf., á tæpar þriðjung í Eimskipi, litlu minna en Frontline Holding S.A., félag sem Magnús Þorsteinsson viðskiptafélagi þeirra feðga hefur verið í forsvari fyrir.

Óvissa um endurfjármögnun XL Leisure Group

Ábyrgðina sem um ræðir gaf Eimskip út í tengslum við sölu á XL Leisure Group. Ábyrgðin er enn í gildi og í tilkynningunni segir að samkvæmt upplýsingum frá XL sé unnið að endurfjármögnun lánsins.

Án þess að taka afstöðu til þess hvenær þeirri vinnu muni ljúka, þá telji stjórn Eimskips ljóst af aðstæðum á evrópskum flugmarkaði og rekstrarumhverfi flugfélaga almennt að líkur á þvi að ábyrgðin falli á Eimskip hafi aukist.  Í ljósi þessa telji stjórn félagsins skynsamlegt að tryggja stöðu þess, komi til þessa að ábyrgðin falli.

Forstjóri Eimskips vonast enn til að endurfjármögnun XL Leisure Group klárist

Í tilkynningunni er haft eftir Gylfa Sigfússyni, forstjóri Eimskips, að endurfjármögnun XL hafi verið stór þáttur í að losa Eimskip undan umræddum ábyrgðum.

„Við vonumst enn til þess að það ferli klárist en viljum jafnframt benda á að það ferli kann að reynast erfiðara en áður var talið. Komi til þess að ábyrgðin falli á Eimskip hafa öflugir fjárfestar lýst sig reiðubúna til að styðja við félagið sem ég tel mjög jákvætt. Markmið okkar er að eiginfjárhlutfall félagsins sé yfir 25%. Í því samhengi er unnið að ýmsum aðgerðum í rekstri félagsins. Tilgangur þessara aðgerða er að lækka skuldir Eimskip umtalsvert og þar með styrkja fjárhag félagsins og eiginfjárhlutfall,“ segir Gylfi.