Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, var endurkjörinn formaður á ársfundi Samtaka atvinnulífsins (SA) sem fram fer í Hörpu.

Björgólfur sagði í ræðu sinni á ársfundinum að þótt verðbólga sé komin niður í 2,1-2,2% og að aðrar eins tölur hafi ekki se´st í mörg ár þá sé of snemmt að fagna.