Björgólfur Jóhannsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, var endurkjörinn formaður samtakanna á aðalfundi SA sem fór fram fyrr í dag. Björgólfur var kjörinn með rúmlega 98% greiddra atkvæða í rafrænni atkvæðagreiðslu sem fram fór meðal aðildarfyrirtækja SA. Þetta kemur fram í frétt á vef Samtaka atvinnulífins .

Björgólfur er forstjóri Icelandair Group. Hann tók við formennsku í Samtökum atvinnulífsins árið 2013.