Björgólfur Jóhannesson, forstjóri Icelandair Group, segir að erlendar fjárfestingar hafi verið félaginu erfiður ljár í þúfu. Á árinu 2009 voru 4,2 milljarðar króna gjaldfærðir vegna taprekstrar og afskrifta viðskiptakrafna og óefnislegra eigna vegna lettneska flugfélagsins SmartLynx.
Til viðbótar nam gjaldfærsla vegna tékkneska flugfélagsins Travel Service um 1,9 milljarði króna á árinu. Þar af nam gjaldfærsla eldsneytisvarna um einum milljarði króna og 900 milljónum vegna sölu á hlut í félaginu undir bókfærðu virði.
Þetta kemur fram í uppgjörstilkynningu frá Icelandair Group í dag en sem kunnugt er nam tap félagsins um 10,7 milljörðum dala á síðasta ári eftir skatta og fjármagnsliði.
Eins og fram kemur í drögum að endurskipulagningu félagsins, sem kynntar voru fyrir stuttu, tilheyrir hvorugt félagið kjarnastarfsemi Icelandair Group og stjórn fyrirtækisins hefur ákveðið að selja bæði félögin.
Fram kemur í ummælum Björgólfs að stjórn félagsins hafi ákveðið að hætta að skilgreina samstæðuna sem fjárfestingarfélag eins og ákvörðun stjórnar á sölu á eignarhlutum í SmartLynx, Bluebird og Travel Service sýnir. Fjárhagsleg endurskipulagning félagsins er á lokastigum.
„Það hefur legið fyrir lengi að Icelandair Group er of skuldsett og vaxtabyrði þess er of há,“ segir Björgólfur.
„Nauðsynlegt er að sú endurskipulagning efnahagsreiknings sem stóð yfir allt árið 2009 klárist á næstunni þannig að tryggt sé að rekstur félagsins standi undir vaxta- og greiðslubyrði af lánum. Það er trú mín að eftir endurskipulagninguna muni félagið vera vel í stakk búið til að sækja fram með rekstri alþjóðlegs leiðakerfis og alhliða þjónustu við ferðamenn.“