Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, hefur ákveðið að gefa kost á sér í embætti formanns Samtaka atvinnulífsins en nýr formaður verður valinn í aðdraganda aðalfundar SA þann þann 6. mars næstkomandi með rafrænni kosningu.

Í tilkynningu frá SA segir að Björgólfur hafi margháttaða reynslu úr atvinnulífi og félagsstarfi. Hann hefur verið forstjóri Icelandair Group frá ársbyrjun 2008 en starfaði áður einkum í sjávarútvegi. Hann var forstjóri Icelandic Group um tveggja ára skeið frá 2006, starfaði sem framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar frá 1999, formaður stjórnar LÍÚ á árunum 2003-2008, var framkvæmdastjóri nýsköpunar- og þróunarsviðs Samherja frá 1996 og fjármálastjóri Útgerðarfélags Akureyringa frá 1992-1996.