veiðisíða
veiðisíða
© vb.is (vb.is)
Laxveiðin í sumar kom mörgum stangveiðimönnum skemmtilega á óvart. Í nýjasta tölublaði Viðskiptablaðsins eru menn úr atvinnulífinu spurðir út í veiðisumarið. Árni Hauksson, fjárfestir, segir sumarið hafa verið ansi gott þótt misjafnlega hafi gengið að fá laxinn til að taka. Katrín Olga Jóhannesdóttir, stjórnarformaður Já upplýsingaveitna, veiddi þann stóra í Svartá.

Björgólfur Jóhannson, forstjóri Icelandair Group, segist ekki hafa verið duglegur að veiða í sumar í viðtali við VB sjónvarp.