„Nú er endanlega búið að staðfesta dauða gömlu Icesave-grýlunnar. Jarðarför hennar fór næstum fram í kyrrþey, a.m.k. sé miðað við þær upphrópanir, formælingar og djöfulskap sem einkenndu tilveru hennar. Öll sú tilfinningasemi var byggð á innantómum hræðsluáróðri og stjórnmálamenn þess tíma ættu að skammast sín fyrir að leiða þjóðina á þær skaðlegu brautir,“ segir Björgólfur Thor á heimasíðu sinni.

Einnig talar Björgólfur um að stærsti áfangi í Icesave-málinu náðist í janúar 2013, þegar EFTA-dómstóllinn hafnaði öllum kröfum Eftirlitsstofnunar EFTA í málinu. Jafnframt segir Björgólfur að sú niðurstaða hafi ekki komið sér á óvart. Hinsvegar hafi það komið honum mjög á óvart hversu langan tíma það tók að sannfæra fólk um að eigur Landsbankans dygðu fyrir Icesave-kröfunum.

„Ég benti fyrst á þetta haustið 2008, í viðtali við Kompás og lagði áherslu á mikilvægi þess að haldið yrði vel utan um eigur bankans, til að tryggja sem bestar heimtur. Ég leyfi mér líka að rifja upp núna, að haustið 2008 varaði ég við því að viðbrögð við vandanum gætu reynst afdrifaríkari en vandinn sjálfur og þar reyndist ég því miður sannspár.“