Novator Finance, félag í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar, hefur aukið hlut sinn í búlgarska bankanum Economic and Investment Bank (EIBank) um 14,63% í 48,63%.

EIBank greindi frá þessu seint í gær, en bankinn er níundi stærsti banki Búlgaríu. Björgólfur Thor hefur falið fjárfestingabankanum Lehman Brothers að selja kauprétt sinn af 65% hlut í búlgarska símafyrirtækinu BTC.