Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, getur ekki, af heilsufarsástæðum, sótt þing Norðurlandaráðs í Helsinki í dag né fund Norðlægu víddarinnar í Pétursborg í Rússlandi, sem haldinn verður á morgun.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríksiráðuneytinu.

Björgvin G. Sigurðsson, samstarfsráðherra Norðurlanda, hleypur í skarðið fyrir utanríkisráðherra á fundunum tveimur.